9.9.6 Samantekt kennslustundar
9.9.6 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
finna topppunkt annars stigs falls út frá jöfnu.
rita annars stigs föll á topppunktsformi, þáttuðu formi og staðalformi.
rita annars stigs föll á topppunktsformi út frá topppunkti og öðrum punkti.
Þessi verkefni hjálpuðu þér að ná markmiðunum:
9.9.1 Topppunktur fundinn út frá topppunktsformi: Í þessu verkefni fannstu topppunkt út frá annars stigs falli sem var ritað á topppunktsformi.
9.9.2 Mismunandi form annars stigs stæðna: Í þessu verkefni æfðir þú að rita annars stigs föll á mismunandi formum: topppunktsformi, þáttuðu formi og staðalformi.
9.9.2 Sjálfspróf
9.9.2 Viðbótarefni
9.9.3 Topppunktsform út frá topppunkti og punkti: Í þessu verkefni hélstu áfram að vinna með annars stigs föll og form þeirra með því að rita annars stigs fall á topppunktsformi út frá topppunkti þess og punkti á grafi fallsins.
9.9.3 Sjálfspróf
9.9.3 Viðbótarefni
9.9.4 Endurritun annars stigs stæðna: Í þessu verkefni ritaðir þú jöfnu fyrir annars stigs fall á topppunktsformi þegar gefin var hliðrun á grunnfallinu.
Eftir þessi verkefni leystir þú eftirfarandi æfingar:
9.9.5 Æfingar
Staðan tekin
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum þessarar kennslustundar?
Lausn
Góð ígrundun! Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að ígrunda eigin hugsun.