88.11 Rita annars stigs jöfnur út frá rauntölulausnum
8.11.0 Yfirlit kennslustundar
8.11.0 • Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund styrkir þú skilning þinn á mismunandi formum annars stigs falls og æfir þig í að fara lipurlega á milli þeirra. Þegar lausnir falls, þáttað form eða staðalform eru gefin getur þú borið kennsl á lykilupplýsingar um fallið.
Þú lærir hvað það merkir að tvö annars stigs föll tengist. Þegar núllstöðvar og einn punktur eru gefin getur þú ákvarðað tiltekið annars stigs fall. Þú notar færnina sem þú hefur lært til að rita annars stigs fall sem uppfyllir gefin skilyrði.
Þegar þú lýkur þessari kennslustund getur þú:
- fundið staðalform annars stigs falls þegar núllstöðvar þess eru gefnar.
- fundið staðalform annars stigs falls þegar graf þess er gefið.
- notað skurðpunktaform annars stigs falls til að skilgreina tiltekið fall þegar núllstöðvar þess og einn punktur eru gefin.
Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðunum:
- 8.11.1 Tengsl annars stigs falls og núllstöðva þess
- 8.11.2 Að finna annars stigs fall út frá núllstöðvum þess
- 8.11.3 Að finna annars stigs fall út frá núllstöðvum þess og punkti
- 8.11.4 Ritun annars stigs falla út frá hvaða formi sem er
Eftir það æfir þú þig og rifjar upp.
- 8.11.5 Æfing
- 8.11.6 Samantekt kennslustundar