6.3.2 Deiling margliða með langdeilingu
6.3.2 • Deiling margliða með langdeilingu
Verkefni
Rifjið saman upp hvernig er reiknað með langdeilingu. Notið sömu aðferð til að deila margliðunum hér að neðan. Eftir hvert dæmi berið þið svarið saman við félaga. Ræðið útreikningana og notið hugtökin deilistofn, deilir og kvóti í skýringunum.
1. Finnið kvótann með langdeilingu.
( m2 + 9 m + 20 ) ÷ ( m + 4 )
Horfið á myndbandið til að fá aðstoð.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
m + 5
m + 4 ) 1 m2 + 9 m + 20 ¯ m + 5 − ( m2 + 4 m ) _ 5 m + 20 − ( 5 m + 20 ) _ 0
2. Finnið kvótann með langdeilingu.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
3. Finnið kvótann með langdeilingu.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
Æfing
4. Finnið kvótann með langdeilingu.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
5. Finnið kvótann með langdeilingu.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
Ertu til í meira?
Dýpkun skilnings
Finnið kvótann með langdeilingu.
Lausn
Berið svarið ykkar saman:
Myndband: Deiling margliða með langdeilingu
Horfðu á eftirfarandi myndband til að læra meira um hvernig margliðum er deilt með langdeilingu.
Viðbótarefni
Deiling margliða með langdeilingu
Til að deila margliðu með tvílið fylgjum við ferli sem líkist mjög langdeilingu talna. Skoðum því vandlega skrefin sem við notum þegar við deilum þriggja stafa tölunni með tveggja stafa tölunni .
Skref 1 - Byrjaðu á tölustafnum lengst til vinstri í deilistofninum og færðu þig til hægri um einn tölustaf í einu. Finndu minnsta mögulega gildi sem er stærra en deilirinn.
Deildu þessu gildi, , með deilinum . Skrifaðu heiltöluhlutann, án afgangs, í reitinn fyrir kvótann.

Skref 2 - Margfaldaðu þennan tölustaf í kvótanum með deilinum, .
Skrifaðu niðurstöðuna undir samsvarandi tölustafi í deilistofninum.

Skref 3 - Dragðu gildin tvö frá hvort öðru.

Skref 4 - Færðu næsta tölustaf niður úr deilistofninum.

Skref 5 - Endurtaktu deilinguna með því að deila nýja gildinu, , með deilinum.
Skrifaðu niðurstöðuna, , yfir samsvarandi tölustaf í kvótanum.

Skref 6 - Margfaldaðu þennan tölustaf í kvótanum með deilinum, .
Skrifaðu niðurstöðuna neðst undir fyrri töluna.

Skref 7 - Dragðu gildin tvö frá hvort öðru. Þar sem engir fleiri tölustafir eru eftir til að færa niður er þetta gildi afgangurinn.
Kvótinn stendur efst.

Við athugum deilinguna með því að margfalda kvótann með deilinum.
Ef deilingin er rétt reiknuð er margfeldið jafnt deilistofninum.
- 35 · 25
- 875 ✓ 875 ✓
Nú deilum við þrílið með tvílið. Þegar þú lest dæmið skaltu taka eftir því hversu lík skrefin eru skrefunum í talnadæminu hér að ofan.
Dæmi 1
Finnið kvótann:.
Skref 1 - Settu dæmið upp sem langdeilingu. Gakktu úr skugga um að deilistofninn sé á staðalformi.
Skref 2 - Deildu með . Það getur hjálpað að spyrja sig: Með hverju þarf ég að margfalda til að fá ?

Skref 3 - Settu svarið, , í kvótann yfir -liðinn. Margfaldaðu með . Raðaðu eins liðum undir deilistofninn.

Skref 4 - Dragðu frá . Þér getur reynst auðveldara að breyta merkjunum og leggja síðan saman. Færðu svo síðasta liðinn, , niður.

Skref 5 - Deildu með . Það getur hjálpað að spyrja sig: Með hverju þarf ég að margfalda til að fá ? Settu svarið, , í kvótann yfir fastaliðinn.

Skref 6 - Margfaldaðu með .

Skref 7 - Dragðu frá .

Skref 8 - Athugun: Margfaldaðu kvótann með deilinum. Þá ættirðu að fá deilistofninn.
Þegar við deildum með fengum við engan afgang. Stundum skilur deiling talna þó eftir afgang. Sama gildir þegar við deilum margliðum. Í næsta dæmi er afgangur.
Líttu aftur á deilistofninn í fyrra dæminu. Liðirnir voru skrifaðir í lækkandi röð eftir stigi og ekkert stig vantaði. Deilistofninn í næsta dæmi er . Það vantar -liðinn, svo við bætum við sem plásshaldara.
Dæmi 2
Finnið kvótann:.
Taktu eftir að það vantar -lið í deilistofninn. Við bætum við sem plásshaldara.
Skref 1 - Settu dæmið upp sem langdeilingu.
Gakktu úr skugga um að deilistofninn sé á staðalformi með plásshöldurum fyrir liði sem vantar.
Skref 2 - Deildu með .
Settu svarið, , í kvótann yfir -liðinn. Margfaldaðu með .
Raðaðu eins liðum saman. Dragðu frá og færðu svo næsta lið niður.

Skref 3 - Deildu með .
Settu svarið,, í kvótann yfir -liðinn.
Margfaldaðu með . Raðaðu eins liðum saman.
Dragðu frá og færðu næsta lið niður.

Skref 4 - Deildu með .
Settu svarið, , í kvótann yfir -liðinn.
Margfaldaðu með .
Raðaðu eins liðum saman. Dragðu frá og færðu næsta lið niður.

Skref 5 - Deildu með . Settu svarið,, í kvótann yfir fastaliðinn.
Margfaldaðu með . Raðaðu eins liðum saman.
Breyttu merkjunum og leggðu síðan saman.
Skrifaðu afganginn sem brot með deilinn sem nefnara.

Skref 6 - Til að athuga svarið margföldum við.
Niðurstaðan ætti að vera .
Í næsta dæmi deilum við með .
Þegar við deilum þurfum við að taka tillit til stuðlanna jafnt sem breytanna.
Dæmi 3
Finnið kvótann:.
Að þessu sinni sýnum við deilinguna í einu skrefi. Við þurfum að bæta við tveimur plásshöldurum áður en við deilum.

Til að athuga svarið margföldum við.
Niðurstaðan ætti að vera .
Dæmi 4
Finnið kvótann:. Sérðu fljótlega leið til að leysa þetta?
Langdeilingin sýnir að afgangurinn er 0.
Svarið er 2.