6.3.0 Yfirlit kennslustundar
6.3.0 • Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund rifjarðu upp veldareglur við deilingu með einliðum. Þú lærir nokkrar aðferðir við að deila margliðu með tvílið. Þú lærir að finna afgang í deilingu margliða og að ákvarða hvort tvíliður sé þáttur í stærri margliðu. Þú æfir líka að deila margliðuföllum.
Margliður eru oft notaðar í útreikningum í eðlisfræði og í raunverulegum aðstæðum sem tengjast skotferlum og hreyfingu hluta. Góð færni í reikniaðgerðum með margliður nýtist þér í áframhaldandi námi.
Að lokinni kennslustund geturðu:
- deilt einliðum.
- deilt margliðu með einlið.
- deilt margliðum með langdeilingu.
- deilt margliðum með reikniriti Horners.
- deilt margliðuföllum.
- notað afgangssetninguna og þáttasetninguna.
Hér eru verkefnin sem hjálpa þér að ná þessum markmiðum:
6.3.1 Deiling með einliðum
6.3.2 Deiling margliða með langdeilingu
- 6.3.2 Sjálfspróf
- 6.3.2 Viðbótarefni
6.3.3 Deiling margliða með reikniriti Horners
- 6.3.3 Sjálfspróf
- 6.3.3 Viðbótarefni
6.3.4 Deiling margliðufalla og afgangssetningin
- 6.3.4 Sjálfspróf
- 6.3.4 Viðbótarefni
6.3.5 Að nota þáttasetninguna
Að því loknu æfirðu og rifjar upp:
- 6.3.6 Æfingar
- 6.3.7 Samantekt kennslustundar