4.8.7 Samantekt kennslustundar
4.8.7 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
útskýra merkingu hugtaksins meðalbreytingarhraði.
áætla eða reikna meðalbreytingarhraða milli tveggja punkta út frá grafi falls.
Eftirfarandi verkefni hjálpuðu þér að ná þessum markmiðum:
4.8.1 Að bera saman breytingar á úttaki út frá inntaki
Í þessu verkefni barstu saman breytingar á úttaki á ólíkum bilum inntaksins með því að skoða töflu. Þú alhæfðir um breytingu yfir tíma án þess að finna tiltekinn breytingarhraða.
4.8.2 Meðalbreytingarhraði og hallatala
Í þessu verkefni lærðir þú formúluna fyrir meðalbreytingarhraða og hvernig á að beita henni á gögn í töflu eða á grafi. Síðan gastu notað formúluna til að gera alhæfingarnar úr verkefni 4.8.1 nákvæmari.
4.8.2: Sjálfspróf
4.8.2: Ítarefni
4.8.3 Að finna og túlka meðalbreytingarhraða
Í þessu verkefni notaðir þú formúluna fyrir meðalbreytingarhraða til að finna meðalbreytingarhraða út frá grafi. Þegar þú hafðir fundið hann túlkaðir þú hann í samhengi við dæmið.
4.8.3: Sjálfspróf
4.8.3: Ítarefni
4.8.4 Breytingarhraði línulegra falla
Í þessu verkefni fannstu breytingarhraða línulegra falla út frá grafi, töflu og jöfnu.
4.8.4: Sjálfspróf
4.8.4: Ítarefni
4.8.5 Að túlka meðalbreytingarhraða með dæmum úr raunveruleikanum
Í þessu verkefni sagðir þú til um hvort breytingarhraði væri jákvæður, neikvæður eða núll. Síðan skoðaðir þú breytingarhraðann nánar og barst saman stærri tímabil á grafinu.
Eftir þessi verkefni leystir þú eftirfarandi æfingar:
4.8.6: Æfingar
Staðan tekin
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum þessarar kennslustundar?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að ígrunda eigin hugsun.