2.3.0 Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund rifjar þú upp og byggir ofan á það sem þú hefur lært um innsetningaraðferðina: að setja tölu eða stæðu í stað breytu. Hægt er að nota innsetningu á fleiri en einn hátt til að leysa sama jöfnuhneppið. Þú skoðar líka hvaða gerðir jöfnuhneppa henta vel til lausnar með innsetningu.
Að lokinni kennslustundinni getur þú:
Leyst jöfnuhneppi með því að setja inn breytu eða stæðu.
Notað fleiri en eina leið til innsetningar og valið hvað er gagnlegt að setja inn út frá því hvernig jöfnurnar eru skrifaðar.
Eftirfarandi verkefni hjálpa þér að ná þessum markmiðum:
2.3.1 Að finna tengsl milli grafa og jafna
2.3.2 Að athuga lausnir jöfnuhneppa
2.3.2 Sjálfspróf
2.3.2 Ítarefni
2.3.3 Að leysa jöfnur með innsetningaraðferðinni
2.3.3 Sjálfspróf
2.3.3 Ítarefni
2.3.4 Að leysa fleiri jöfnur
Síðan æfir þú þig og rifjar upp.
2.3.5 Æfingar
2.3.6 Samantekt kennslustundar