1.11.6 Samantekt kennslustundar
1.11.6 Samantekt kennslustundar
1.11.6 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
Finna hallatölu og skurðpunkt við y-ás fyrir línu með jöfnu á forminu:
Breyta jöfnu á þessu formi í jafngilda jöfnu á hallatöluformi:
Nota ýmsar aðferðir til að finna hallatölu og skurðpunkt við y-ás fyrir graf línulegrar jöfnu sem er gefin á mismunandi formum.
Hér eru verkefnin sem hjálpuðu þér að ná þessum markmiðum:
1.11.1: Að beita dreifireglu til að umrita stæður. Í þessu verkefni umritaðir þú stæður og ræddir aðferðir þínar, meðal annars dreifiregluna.
1.11.2: Að tengja jöfnur með tveimur breytum, gröf þeirra og aðstæður. Í þessu verkefni skoðaðir þú tvö gröf úr fyrri kennslustundum og ákvaðst hvaða tölur væru hallatölur og skurðpunktar. Þú túlkaðir líka hvað tölurnar merktu í aðstæðunum sem gröfin sýndu.
1.11.2: Sjálfspróf
1.11.2: Ítarefni
1.11.3: Að beita táknrænni og óhlutbundinni röksemdafærslu um línulegar jöfnur. Í þessu verkefni paraðir þú jöfnur á staðalformi við hallatölur þeirra og skurðpunkta við y-ás.
1.11.3: Sjálfspróf
1.11.3: Ítarefni
1.11.4: Að bera kennsl á eiginleika grafs. Í þessu verkefni notaðir þú jöfnu til að bera kennsl á eiginleika grafs hennar, meðal annars hallatölu og hvar línan sker x-ás og y-ás.
Eftir þessi verkefni vannst þú þessar æfingar:
1.11.5: Æfingar
Staðan tekin
Hve vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum þessarar kennslustundar á kvarðanum 1 til 5?
Lausn
Gott hjá þér að staldra við og meta stöðuna. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að hugsa um hvernig þú hugsar.