11 Skilningur á fortíðinni
Yfirferðarspurningar
Yfirferðarspurningar
1.
Hvað af þessu er frumheimild?
- dagbókarfærsla sem einstaklingur ritaði á tímabilinu sem fjallað er um
- ævisaga frá okkar tímum um einstakling sem var uppi á tímabilinu sem fjallað er um
- frásögn í kennslubók frá tuttugustu og fyrstu öld af orrustu sem háð var á nítjándu öld
- grein í fræðitímariti
2.
Hvern telja Kínverjar föður sagnfræðinnar?
- Hómer
- Santayana
- Heródótos
- Sima Qian
3.
Hvaða sögutúlkun byggist á því að fyrst og fremst megi skýra söguna út frá lífi leiðtoga og ákvörðunum þeirra?
- mikilmennakenning
- framfarasinnuð sögutúlkun
- kynjafræðileg túlkun
- marxísk sögutúlkun
4.
Sú skoðun að stéttabarátta sé helsti drifkraftur sögunnar nefnist ______.
- félagsleg túlkunarkenning
- endurskoðunarsjónarmið
- framfarasinnuð sögutúlkun
- marxísk sögutúlkun
5.
Hvað knýr sögulegan atburð af stað með beinustum hætti?
- þriðja stigs orsökin
- frumorsökin
- gjörð mikilmennis
- félagslega hugsmíðin
6.
Sjónarhorn okkar eiga djúpar rætur í _______, sem við tileinkum okkur í uppeldi og úr umhverfi okkar.
- menntun
- félagslegum hugsmíðum
- sögulegri innlifun
- orsakasamhengi