Hvers vegna skiptir þetta máli?

Efnisyfirlit kafla
Hvers vegna skiptir þetta máli?
Emma var reikningshaldsnemi og á leið í bókhaldstíma á miðvikudagsmorgni ásamt vini sínum Sam. Sam var fjármálanemi og kvartaði stöðugt á leiðinni yfir því hvað honum leiddist bókhaldsnámskeiðið. „Til hvers þurfum við að eyða svona miklum tíma í debet, kredit, reikninga og allt þetta bókhaldshrognamál? Ég er í fjármálanámi. Ég mun ekki sitja alla daga við að bóka færslur og telja aura. Ég kvíði fyrir tímanum í dag. Samkvæmt kennsluáætluninni eigum við að fjalla um reikningshald á rekstrargrunni. Hvað með það? Ég þarf bara að fá reikningsskilin svo ég hafi gögnin sem ég þarf.“
Emma brosti og hugsaði sig um áður en hún svaraði. Sjálf hafði hún mikinn áhuga á debet, kredit og „öllu þessu bókhaldshrognamáli“, eins og Sam kallaði það. Hún vissi að þótt slík smáatriði höfðuðu ekki til allra og væru ekki öllum auðskilin, réðu þau miklu um það hvenær liðir væru færðir og hversu áreiðanleg reikningsskilin væru. „Já, já, Sam. Bókhald er ekki alltaf auðvelt eða skemmtilegt, en það skiptir máli. Reikningsskilin sem þú styðst við í fjármálastarfi liggja til grundvallar mörgum ákvörðunum. Þau eru mikilvægt verkfæri. Þótt þú þurfir ekki sjálfur að semja reikningsskil verður þú að skilja reikningsskilareglurnar að baki þeim. Við eigum enn eftir að fara yfir smáatriðin, en ég veit að hagnaður eða tap tímabils getur verið verulega mismunandi eftir því hvort rekstrarreikningurinn er gerður á greiðslugrunni eða rekstrargrunni. Það hljóta að vera mikilvægar upplýsingar fyrir þann sem notar rekstrarreikninginn.“