Samantekt
Samantekt
18.1 Mikilvægi spágerðar
Notendur byggja á reikningsskilaspám í ólíkum tilgangi. Frá sjónarhóli fjármála nýtast þær einkum til að meta virði fyrirhugaðs vaxtar og áætla þörf fyrirtækisins fyrir handbært fé.
18.2 Söluspá
Söluspáin er unnin fyrst því á henni byggist stór hluti heildarspárinnar. Til að hún verði sem áreiðanlegust er horft til fyrri sölu og annarra upplýsinga um fyrirtækið, vörur þess, efnahagsumhverfi, viðskiptavini og samkeppnisaðila.
18.3 Pro forma reikningsskil
Pro forma reikningsskil lýsa væntanlegri fjárhagsstöðu og afkomu. Reikningsskilaspáin byggist á söluspá, fyrri gögnum, greiningu reikningsskila og tengslum milli einstakra reikninga og yfirlita. Einnig er tekið mið af öðrum tiltækum upplýsingum um fyrirtækið, rekstrarumhverfi þess og framtíðarhorfur svo spáin verði sem áreiðanlegust.
18.4 Gerð heildarspárinnar
Hver liður reikningsskilaspárinnar er áætlaður með hliðsjón af fyrri gögnum og innbyrðis tengslum rekstrarreiknings og efnahagsreiknings.
18.5 Spá um sjóðstreymi og mat á virði vaxtar
Þegar spár um rekstrarreikning og efnahagsreikning liggja fyrir má nýta gögn úr þeim, stefnu fyrirtækisins og tengsl milli reikninga til að gera sjóðstreymisspá. Hún sýnir hvar skortur á handbæru fé kann að myndast og gerir fjármálastjórum kleift að bregðast tímanlega við fjárþörf. Meta þarf sjóðstreymisspána ásamt öðrum spáðum reikningsskilum til að fá heildarmynd af áhrifum og virði fyrirhugaðs vaxtar.
18.6 Notkun Excel til að búa til langtímaspá
Excel er öflugt verkfæri við gerð fjárhagsspáa. Með formúlum má bæði reikna einstaka liði og tengja saman reikninga og reikningsskilayfirlit. Þannig er hægt að útbúa reikningsskilin, tryggja að þau stemmi og auðvelda sviðsmynda- og næmnigreiningu.