Myndbandsverkefni
Útreikningur NPV og IRR
Myndband um útreikning NPV og IRR
Fyrirtæki beita NPV og IRR til að meta hvort verkefni auki virði hluthafa. Myndbandið CFA® Level I Corporate Finance útskýrir þessar aðferðir nánar. Fylgdu útreikningunum í myndbandinu og æfðu þig um leið í að reikna IRR á fjárhagsreiknivél.
1.Hvernig á fyrirtæki samkvæmt myndbandinu að beita NPV og IRR þegar það ákveður hvort ráðast skuli í verkefni?
2.Trim hf. metur í myndbandinu verkefni með væntu sjóðsinnstreymi að fjárhæð $350, $250 og $150 á árum 1, 2 og 3. Spáðu fyrst: Hvað verður um NPV ef röð sjóðsinnstreymisins er snúið við? Reiknaðu síðan NPV þegar sjóðsinnstreymið er $150 á ári 1, $250 á ári 2 og $350 á ári 3. Notaðu sama 25% afvöxtunarhlutfall og í myndbandinu. Berðu niðurstöðuna saman við spá þína.
Ólympíuleikarnir í Tókýó
Borg þarf að ráðast í gríðarlegar fjárfestingar til að halda Ólympíuleika. Myndbandið How the Tokyo Olympics Became the Most Expensive Summer Games Ever fjallar um fjárfestingar og útgjöld Tókýóborgar vegna Sumarólympíuleikanna 2020 og áhrif heimsfaraldursins á framkvæmd leikanna.
3.Útbúðu Excel-töflureikni og notaðu kostnaðarupplýsingarnar í myndbandinu til að áætla NPV og IRR þess að borg haldi Ólympíuleika.
4.Hvernig breytast forsendur Excel-töflureiknisins vegna COVID-19-heimsfaraldursins? Útbúðu NPV-snið fyrir Ólympíuleikana í Tókýó sem tekur mið af þeim breytingum sem heimsfaraldurinn olli.