Verkefni
Verkefni
1.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000. Reiknaðu endurgreiðslutíma verkefnisins.
2.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000 og áætlaður endingartími hans er 10 ár. Reiknaðu NPV verkefnisins miðað við 8% fjármagnskostnað.
3.
Ef fjármagnskostnaður Vesturlands hf. reynist vera 11%, hvernig breytist þá NPV verkefnisins í dæmi 2?
4.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000 og áætlaður endingartími hans er 10 ár. Reiknaðu IRR-gildi verkefnisins.
5.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000 og áætlaður endingartími hans er 10 ár. Reiknaðu arðsemisvísitölu (PI) verkefnisins miðað við 8% fjármagnskostnað.
6.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000 og áætlaður endingartími hans er 10 ár. Reiknaðu breytta innri vexti (MIRR) verkefnisins miðað við 8% fjármagnskostnað.
7.
Vesturland hf. fjárfestir $20.000 í orkunýtnari LED-ljósabúnaði fyrir verksmiðju sína. Búnaðurinn lækkar árlegan rafmagnskostnað um $4.000 og áætlaður endingartími hans er 10 ár. Reiknaðu afvaxtaðan endurgreiðslutíma verkefnisins miðað við 8% fjármagnskostnað.
8.
Hótelkeðjan Orlofshótel ber saman tvær tegundir gólfflísa fyrir byggingar sínar. Ódýrari flísarnar endast í fimm ár en dýrari og endingarbetri flísarnar í átta ár. Þú ætlar að nota endurnýjunarkeðjuaðferðina til að bera kostina saman. Hversu oft þarf þá að gera ráð fyrir að hvor tegund sé endurnýjuð?
9.
Þú hyggst búa í háskólabænum næstu tvö ár og íhugar að kaupa raðhús fyrir $250.000. Kaupir þú húsið verða árleg húsnæðisútgjöld $6.000 lægri þessi tvö ár en við leigu á íbúð. Eftir það telur þú að þú getir leigt öðrum háskólanema húsið fyrir $12.000 á ári. Árlegir skattar, viðhald og annar kostnaður yrðu $5.000. Þú gerir ráð fyrir að leigja húsið út í fimm ár og selja það síðan fyrir $275.000. Notaðu Excel til að útbúa NPV-snið fyrir verkefnið. Er hagkvæmt að kaupa raðhúsið ef lánsvextir eru 3%? En ef þeir eru 8%?