77 Þyngdarlögmál Newtons
Lykilhugtök
- sólfirrð
- fjarlægasti punktur reikistjörnu frá sólinni á braut hennar; fyrir önnur fyrirbæri á braut er samsvarandi punktur fjærpunktur brautarinnar
- Kópernikusarlíkan
- líkan af sólkerfinu þar sem sólin er í miðju sólkerfisins og allar reikistjörnurnar ganga á braut um hana; þetta kallast einnig sólmiðjulíkan
- miðskekkja
- mælikvarði á það hve langt er á milli brennipunkta sporbaugs
- almenn afstæðiskenning Einsteins
- kenningin um að þyngdarkraftur stafi af sveigju tímarúms vegna massa hlutar
- þyngdarfasti
- hlutfallsfastinn í þyngdarlögmáli Newtons
- lögmál Keplers um hreyfingu reikistjarna
- þrjú lögmál sem Johannes Kepler leiddi fram og lýsa eiginleikum allra hnatta á sporbraut
- þyngdarlögmál Newtons
- segir að þyngdarkraftur milli tveggja hluta sé í réttu hlutfalli við margfeldi massa þeirra og í öfugu hlutfalli við annað veldi fjarlægðarinnar á milli þeirra
- sólnánd
- næsti punktur reikistjörnu við sólina á braut hennar; fyrir önnur fyrirbæri á braut er samsvarandi punktur nærpunktur brautarinnar
- Ptólemaíosarlíkan
- líkan af sólkerfinu þar sem jörðin er í miðju sólkerfisins og sólin og allar reikistjörnurnar ganga á braut um hana; þetta kallast einnig jarðmiðjulíkan