1616 Speglar og linsur
Samantekt kafla
16.1 Endurkast
- Endurvarpshorn er jafnt innfallshorni.
- Sléttir speglar og kúptir speglar mynda uppréttar sýndarmyndir. Holspeglar geta myndað raunmyndir á hvolfi eða uppréttar sýndarmyndir, eftir staðsetningu hlutarins.
- Hægt er að reikna myndfjarlægð, myndhæð og aðra eiginleika með spegil-/linsujöfnunni og stækkunarjöfnunni.
16.2 Ljósbrot
- Brotstuðull efnis er ljóshraði í tómarúmi deilt með ljóshraða í efninu.
- Lögmál Snells lýsir sambandi brotstuðla, innfallshorns og brothorns.
- Markhornið, θc, ákvarðar hvort alspeglun geti átt sér stað og má reikna með θc = sin⁻¹(n₂/n₁), fyrir n₁ > n₂.
16.3 Linsur
- Hægt er að spá fyrir um eiginleika mynda sem íhvolfar og kúptar linsur mynda með geislateikningum. Eiginleikarnir fela meðal annars í sér hvort myndin er raunmynd eða sýndarmynd, hvort hún er á hvolfi eða upprétt og hversu stór hún er.
- Mannsaugað og leiðréttingarlinsur má útskýra með geislaljósfræði.
- Hægt er að reikna eiginleika mynda sem linsur mynda með spegil-/linsujöfnunni.