Dæmi
16.1 Endurkast
Dæmi 1. Sumar myndavélar með aðdráttarlinsu nota spegil í stað linsu. Hvaða sveigjuradíus þarf holspegill að hafa til að koma í stað aðdráttarlinsu með brennivíddina 0,800 m?
- 0,400 m
- 1,60 m
- 4,00 m
- 16,0 m
Dæmi 2. Hver er brennivídd snyrtispegils sem gefur stækkunina 2,00 þegar andlit manneskju er í 8,00 cm fjarlægð?
- −16 cm
- −5,3 cm
- 5,3 cm
- 16 cm
16.2 Ljósbrot
Dæmi 3. Ljósleiðari notar flintgler (n = 1,66) sem er klætt króngleri (n = 1,52). Hvert er markhornið?
- 33,2°
- 23,7°
- 0,92 rad
- 1,16 rad
Dæmi 4. Gerum ráð fyrir að myndin sýni ljósgeisla sem fer úr lofti (n = 1,0003) í gegnum króngler (n = 1,52) og ofan í vatn, líkt og ljósgeisli sem fer inn í fiskabúr.

Reiknaðu hliðrun geislans vegna glersins, Δx, ef innfallshornið er 40,0° og glerið er 1,00 cm þykkt.
- 0,839 cm
- 0,619 cm
- 0,466 cm
- 0,373 cm
16.3 Linsur
Dæmi 5. Aðdráttarlinsa myndavélar hefur stillanlega brennivídd frá 80,0 til 200 mm. Hvert er bil linsustyrksins?
- Lægsti linsustyrkurinn er 0,05 D og hæsti linsustyrkurinn er 0,125 D.
- Lægsti linsustyrkurinn er 0,08 D og hæsti linsustyrkurinn er 0,20 D.
- Lægsti linsustyrkurinn er 5,00 D og hæsti linsustyrkurinn er 12,5 D.
- Lægsti linsustyrkurinn er 80 D og hæsti linsustyrkurinn er 200 D.
Dæmi 6. Gerum ráð fyrir að aðdráttarlinsa með brennivíddina 200 mm sé notuð til að ljósmynda fjöll í 10,0 km fjarlægð. A. Hvar er myndin? B. Hver er hæð myndarinnar af 1.000 m háum kletti á einu fjallanna?
- A. Myndin er 0,200 m sömu megin við linsuna. B. Hæð myndarinnar er −2,00 cm.
- A. Myndin er 0,200 m hinum megin við linsuna. B. Hæð myndarinnar er −2,00 cm.
- A. Myndin er 0,200 m hinum megin við linsuna. B. Hæð myndarinnar er +2,00 cm.
- A. Myndin er 0,100 m sömu megin við linsuna. B. Hæð myndarinnar er +2,00 cm.