1616 Speglar og linsur
Verklegt verkefni
16.3 Linsur
Í þessu verklega verkefni rannsakarðu linsulíka eiginleika glærrar flösku.
Efni og áhöld
- vatnsflaska eða glas með hringlaga þversniði og sléttum, lóðréttum hliðum
- nóg vatn til að fylla flöskuna
- metrastika eða málband
- sterkur ljósgjafi með lítilli peru, til dæmis lítið vasaljós
- lítill bjartur hlutur, til dæmis silfurskeið
Framkvæmd
- Horfðu í gegnum glæra gler- eða plastflösku og lýstu því sem þú sérð.
- Fylltu síðan flöskuna af vatni og lýstu því sem þú sérð.
- Notaðu vatnsflöskuna sem linsu til að mynda mynd af björtum hlut.
- Áætlaðu brennivídd vatnsflöskulinsunnar. Hvernig geturðu fundið brennivídd linsunnar með ljósgjafanum og auðum vegg? Hvernig geturðu fundið brennivíddina með bjarta hlutnum? Hvers vegna breytti vatnið linsueiginleikum flöskunnar?