55 Línuleg jöfnuhneppi
Meginatriði
Meginatriði
5.1 Leysa jöfnuhneppi með grafískri aðferð
5.2 Leysa jöfnuhneppi með innsetningaraðferð
- Leysa jöfnuhneppi með innsetningaraðferð Skref 1. Einangrið aðra breytuna í annarri jöfnunni. Skref 2. Setjið stæðuna úr skrefi 1 inn í hina jöfnuna. Skref 3. Leysið jöfnuna sem fæst. Skref 4. Setjið lausnina úr skrefi 3 inn í aðra upphaflegu jöfnuna til að finna hina breytuna. Skref 5. Skrifið lausnina sem raðaða tvennd. Skref 6. Sannreynið að raðaða tvenndin uppfylli báðar upphaflegu jöfnurnar.
5.3 Leysa jöfnuhneppi með eyðingaraðferð
- Leysa jöfnuhneppi með eyðingaraðferð Skref 1. Skrifið báðar jöfnurnar á staðalformi og losið þær við brotastuðla ef einhverjir stuðlar eru brot. Skref 2. Gerið stuðla annarrar breytunnar að samlagningarandhverfum. Veljið breytuna sem eyða á. Margfaldið aðra eða báðar jöfnurnar þannig að stuðlar þeirrar breytu verði samlagningarandhverfur. Skref 3. Leggið saman jöfnurnar úr skrefi 2 til að eyða annarri breytunni. Skref 4. Leysið fyrir breytuna sem eftir er. Skref 5. Setjið lausnina úr skrefi 4 inn í aðra upphaflegu jöfnuna og leysið fyrir hina breytuna. Skref 6. Skrifið lausnina sem raðaða tvennd. Skref 7. Sannreynið að raðaða tvenndin uppfylli báðar upphaflegu jöfnurnar.
5.5 Leysa blöndunarverkefni með jöfnuhneppum
5.6 Teikna gröf línulegra ójöfnuhneppa
- Leysa línulegt ójöfnuhneppi með grafískri aðferð Skref 1. Teiknið graf fyrri ójöfnunnar. Teiknið markalínuna. Skyggið þeim megin við markalínuna þar sem ójafnan er sönn. Skref 2. Teiknið graf seinni ójöfnunnar í sama hnitakerfi. Teiknið markalínuna. Skyggið þeim megin við þá markalínu þar sem ójafnan er sönn. Skref 3. Lausnin er svæðið þar sem skyggingarnar skarast. Skref 4. Sannreynið með því að velja prófunarpunkt.