3838 Stoðkerfið
Spurningar tengdar myndefni
Spurning 1. Mynd 38.19 Hver eftirfarandi fullyrðinga um beinvef er röng?
- Þéttbein er gert úr sívölum beinungum sem raðast þannig að þeir liggja eftir endilöngu beininu.
- Havers-gangar innihalda eingöngu æðar.
- Havers-gangar innihalda æðar og taugaþræði.
- Frauðbein finnst í innri hluta beinsins og þéttbein finnst yst.
Spurning 2. Mynd 38.37 Hver eftirfarandi fullyrðinga um vöðvasamdrátt er sönn?
- Aflslagið verður þegar ATP er vatnsrofið í ADP og Pᵢ.
- Aflslagið verður þegar ADP og Pᵢ losna frá mýósínhausnum.
- Aflslagið verður þegar ADP og Pᵢ losna frá virku seti aktíns.
- Aflslagið verður þegar Ca²⁺ binst mýósínhausnum.
Spurning 3. Mynd 38.38 Banvæna taugagasið sarín hamlar asetýlkólínesterasa óafturkræft. Hvaða áhrif hefði sarín á vöðvasamdrátt?