Lykilhugtök
asetýlkólín: taugaboðefni sem taugafrumur í miðtaugakerfi og úttaugakerfi losa
boðspenna: sjálfútbreiðandi, skammvinn breyting á rafspennu yfir himnu taugafrumu eða vöðvafrumu
Alzheimer-sjúkdómur: taugahrörnunarsjúkdómur sem einkennist af truflunum á minni og hugsun
möndlungur: bygging í randkerfinu sem vinnur úr ótta
vefjarhimna: kóngulóarvefslíkt miðlag heilahimnanna sem þekja miðtaugakerfið
stjarnfruma: tróðfruma í miðtaugakerfi sem sér taugafrumum fyrir næringarefnum, jafnar utanfrumuumhverfi og veitir byggingarlegan stuðning; tekur einnig þátt í myndun blóð-heilaþröskuldsins
athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD): taugaþroskaröskun sem einkennist af erfiðleikum við að viðhalda athygli og stjórna hvötum
einhverfurófsröskun (ASD): taugaþroskaröskun sem einkennist af skertri félagslegri samskiptafærni og boðskiptum
ósjálfráða taugakerfið: hluti úttaugakerfisins sem stjórnar líkamsstarfsemi án meðvitaðrar stjórnar
sími: pípulaga bygging sem flytur boð frá frumubol taugafrumu til símaenda
símahóll: rafnæmt svæði á frumubol taugafrumu sem samþættir boð frá mörgum taugatengingum
símaendi: bygging á enda síma sem getur myndað taugamót við aðra taugafrumu
grunnhnoð: samtengd kjarnasvæði í heilanum sem koma að hreyfingum og áhugahvöt; einnig kölluð botnkjarnar
botnkjarnar: sjá grunnhnoð
heilastofn: hluti heilans sem tengist mænunni; stjórnar grunnstarfsemi taugakerfisins, svo sem öndun, hjartslætti og kyngingu
litli heili: heilabygging sem tekur þátt í líkamsstöðu, samhæfingu hreyfinga og námi nýrra hreyfinga
heilabörkur: ysta lag heilavefs; tekur þátt í fjölbreyttri æðri taugastarfsemi
heila- og mænuvökvi (CSF): tær vökvi sem umlykur heila og mænu og fyllir heilahólf og mænugöng; virkar sem höggdeyfir og flytur efni um heila og mænu
æðaflækja: svampkenndur vefur í heilahólfum sem framleiðir heila- og mænuvökva
gyrðisgára: heilasvæði sem hjálpar til við að stjórna tilfinningum og sársauka; talið taka beinan þátt í meðvitaðri líkamssvörun við óþægilegri reynslu
hvelatengsl: þykkur taugavöndull sem tengir heilahvelin saman
heilataug: skyn- og/eða hreyfitaug sem liggur út frá heilanum
gripla: bygging sem teygir sig út frá frumubol taugafrumu og tekur við boðum frá öðrum taugafrumum
afskautun: breyting á himnuspennu í átt að minna neikvæðu gildi
basthimna: seigt ysta lag heilahimnanna sem þekur miðtaugakerfið
þekjufruma: fruma sem klæðir vökvafyllt heilahólf og mænugöng; tekur þátt í framleiðslu heila- og mænuvökva
flogaveiki: taugasjúkdómur sem einkennist af endurteknum flogum
örvandi eftirmótaspenna (EPSP): afskautun eftirmótahimnu af völdum taugaboðefna sem losna frá fyrirmótafrumu
ennisblað: hluti heilabarkarins sem inniheldur hreyfibörk og svæði sem koma að skipulagningu, athygli og tungumáli
taugatróður: tróðfrumur sem sinna stuðningshlutverkum fyrir taugafrumur
gára: hrygglaga útskot í heilaberki
dreki: heilabygging í gagnaugablaði sem tekur þátt í úrvinnslu minninga
yfirskautun: breyting á himnuspennu í átt að meira neikvæðu gildi
undirstúka: heilabygging sem stjórnar losun hormóna og samvægi líkamans
hamlandi eftirmótaspenna (IPSP): yfirskautun eftirmótahimnu af völdum taugaboðefna sem losna frá fyrirmótafrumu
randkerfi: tengd heilasvæði sem vinna úr tilfinningum og áhugahvöt
langtímabæling (LTD): langvarandi minnkun á tengingu milli fyrirmótafrumu og eftirmótafrumu
langtímaefling (LTP): langvarandi aukning á tengingu milli fyrirmótafrumu og eftirmótafrumu
alvarlegt þunglyndi: geðsjúkdómur sem einkennist af langvarandi depurð
himnuspenna: munur á rafspennu innan og utan frumuhimnu
heilahimna: himna sem þekur og verndar miðtaugakerfið
örtróður: tróðfrumur sem hreinsa upp og brjóta niður dauðar frumur og verja heilann gegn innrásarörverum
mýelín: fituríkt efni sem tróðfrumur mynda og einangrar síma
taugahrörnunarsjúkdómur: sjúkdómur í taugakerfi sem einkennist af vaxandi tapi á taugastarfsemi, yfirleitt vegna dauða taugafrumna
taugafruma: sérhæfð fruma sem getur tekið við og sent raf- og efnaboð
Ranvierskor: bil í mýelínslíðri þar sem boðspennan endurnýjast
noradrenalín: taugaboðefni og hormón sem losnar við virkjun driftaugakerfisins
hnakkablað: hluti heilabarkarins sem inniheldur sjónbörk og vinnur úr sjónáreitum
fágriplufruma: tróðfruma sem myndar mýelínslíður um síma taugafrumna í miðtaugakerfi
seftaugakerfi: hluti ósjálfráða taugakerfisins sem stjórnar starfsemi innyfla í hvíld og við meltingu
hvirfilblað: hluti heilabarkarins sem tekur þátt í úrvinnslu snertingar og skynjunar á stöðu líkamans í rými
Parkinson-sjúkdómur: taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á stjórnun hreyfinga
reifarhimna: þunnt himnulag sem liggur beint utan á heila og mænu
stöðuskyn: skynjun á stöðu líkamshluta í rými
geislatróður: tróðfrumur sem mynda stoðgrind fyrir þroskandi taugafrumur þegar þær flytjast á lokastaði sína
ónæmistími: tímabil eftir boðspennu þegar erfiðara eða ómögulegt er að koma af stað nýrri boðspennu; stafar af óvirkjun natríumganga og virkjun viðbótar kalíumganga í himnunni
stökkleiðni: stökk boðspennu eftir síma frá einni Ranvierskor til þeirrar næstu
hnoðatróður: tróðfruma sem veitir taugafrumum í úttaugakerfi næringarefni og byggingarlegan stuðning
geðklofi: geðsjúkdómur sem raskar raunveruleikaskyni; sjúklingar eiga oft erfitt með að hugsa skýrt og geta haft ranghugmyndir
Schwann-fruma: tróðfruma sem myndar mýelínslíður utan um síma taugafrumu í úttaugakerfi
skyn- og líkamstaugakerfi: kerfi skyn- og hreyfitauga
líkamsskyn: snertiskyn og önnur skynjun frá líkamanum
mæna: þykkur taugavöndull sem tengir heilann við úttaugar; flytur skyn- og hreyfiupplýsingar og inniheldur taugafrumur sem stjórna hreyfiviðbrögðum
mænutaug: taug sem liggur milli húðar eða vöðva og mænu
skor: inndregið svæði eða dalur í heilaberki
samlagning taugamóta: ferli þar sem mörg boð frá fyrirmótafrumum mynda örvandi eftirmótaspennur um svipað leyti þannig að eftirmótafruman afskautast nægilega til að koma af stað boðspennu
driftaugakerfi: hluti ósjálfráða taugakerfisins sem virkjast í streituvaldandi berjast-eða-flýja-aðstæðum
taugamót: tenging milli tveggja taugafrumna þar sem taugaboð berast á milli
taugamótaglufa: rýmið milli fyrirmóta- og eftirmótahimnu
taugamótabóla: kúlulaga bygging sem inniheldur taugaboðefni
gagnaugablað: hluti heilabarkarins sem vinnur úr heyrnarupplýsingum; hlutar gagnaugablaðsins koma að tali, minni og úrvinnslu tilfinninga
stúka: heilasvæði sem áframsendir skynupplýsingar til heilabarkarins
þröskuldsspenna: stig afskautunar sem þarf til að boðspenna fari af stað
heilahólf: holrými í heilanum sem inniheldur heila- og mænuvökva