Spurningar um gagnrýna hugsun
Spurning 29. Hvernig takmarkar flæði stærð lífveru? Hvernig er unnið gegn þeirri takmörkun?
Spurning 30. Hvert er sambandið milli grunnefnaskiptahraða (BMR) og líkamsstærðar? Hvers vegna er það þannig?
Spurning 31. Útskýrið hvernig opið blóðrásarkerfi takmarkar stærð dýra.
Spurning 32. Lýsið einni mikilvægri umhverfistakmörkun fyrir útverma og einni fyrir innverma. Hvers vegna takmarkast þeir af ólíkum þáttum?
Spurning 33. Hvernig getur flöguþekja bæði auðveldað flæði og komið í veg fyrir skemmdir af völdum núnings?
Spurning 34. Hvað er líkt með brjóski og beini?
Spurning 35. Heila- og mænusigg (MS) er hamlandi sjálfsofnæmissjúkdómur sem veldur tapi á einangrun umhverfis síma taugunga. Hvaða frumugerð ræðst ónæmiskerfið á og hvernig truflar það boðflutning í taugakerfinu?
Spurning 36. Þegar einstaklingur lifir kyrrsetulífi rýrna beinagrindarvöðvar, en sléttir vöðvar gera það ekki. Hvers vegna?
Spurning 37. Hvers vegna eru neikvæðir afturverkunarhringir notaðir til að stjórna samvægi líkamans?
Spurning 38. Hvers vegna getur sótthiti verið gagnlegur við bakteríusýkingu?
Spurning 39. Hvernig er ástand eins og sykursýki gott dæmi um bilun í viðmiðunargildi hjá mönnum?
Spurning 40. Hvernig geta innvermar, á sameindastigi, framleitt eigin varma með því að stilla ferla sem tengjast frumuöndun? Rifjið upp 7. kafla ef þörf er á frekari upplýsingum um frumuöndun.