3333 Dýralíkaminn: Grunnform og starfsemi
Spurningar um myndræn tengsl
Spurning 1. Mynd 33.11 Hver eftirfarandi fullyrðinga um gerðir þekjufrumna er röng?
- Einfaldar stuðulþekjufrumur klæða lungnavef.
- Einfaldar teningsþekjufrumur taka þátt í síun blóðs í nýrunum.
- Sýndarlagskipt stuðulþekja er í einu lagi, en röðun kjarna lætur hana virðast marglaga.
- Breytiþekja breytir um þykkt eftir því hversu full þvagblaðran er.
Spurning 2. Mynd 33.21 Segið til um hvort hvert eftirfarandi ferli sé stjórnað af jákvæðum eða neikvæðum afturverkunarhring.
- Manneskja finnur til seddu eftir að hafa borðað stóra máltíð.
- Í blóðinu er nægt magn rauðra blóðkorna. Því hættir nýrað að seyta rauðkornavaka, hormóni sem örvar myndun nýrra rauðra blóðkorna.
Spurning 3. Mynd 33.23 Þegar bakteríum er eytt af hvítfrumum losna sótthitavaldar út í blóðið. Sótthitavaldar endurstilla hitastilli líkamans á hærra hitastig og valda sótthita. Hvernig gætu sótthitavaldar valdið því að líkamshiti hækki?