3333 Dýralíkaminn: Grunnform og starfsemi

Samantekt kafla

33.1 Form og starfsemi dýra

Líkamar dýra eru af ýmsum stærðum og gerðum. Takmarkanir á stærð og lögun dýra hafa meðal annars áhrif á hreyfingu þeirra. Flæði hefur áhrif á stærð þeirra og þroskun. Líforkufræði lýsir því hvernig dýr nota og afla orku í tengslum við líkamsstærð, virkni og umhverfi.

33.2 Frumvefir dýra

Grunnbyggingareiningar flókinna dýra eru fjórir frumvefir. Þeir mynda saman líffæri sem hafa tiltekna og sérhæfða starfsemi í líkamanum, til dæmis húð eða nýru. Líffæri raðast saman í líffærakerfi sem sinna sameiginlegum hlutverkum. Frumvefirnir fjórir eru þekjuvefur, bandvefur, vöðvavefur og taugavefur.

33.3 Samvægi

Samvægi er kvikt jafnvægi sem er viðhaldið í líkamsvefjum og líffærum. Það er kvikt vegna þess að það lagar sig stöðugt að breytingum sem kerfin verða fyrir. Það er jafnvægi vegna þess að líkamsstarfsemi er haldið innan eðlilegra marka, með nokkrum sveiflum í kringum viðmiðunargildi ferlanna.