2727 Inngangur að fjölbreytileika dýra
Spurningar um myndræn tengsl
Mynd 27.5 Ef Hox 13-geni í mús væri skipt út fyrir Hox 1-gen, hvernig gæti það breytt þroska dýrsins?
Mynd 27.6 Hver eftirfarandi fullyrðinga er röng?
- Vefdýr (Eumetazoa) hafa sérhæfða vefi, en Parazoa ekki.
- Lophotrochozoa og Ecdysozoa eru bæði tvíhliða dýr (Bilateria).
- Acoela og holdýr (Cnidaria) hafa bæði geislótta samhverfu.
- Liðdýr eru skyldari þráðormum en liðormum.
Mynd 27.9 Hver eftirfarandi fullyrðinga um dýr með tvö kímlög og dýr með þrjú kímlög er röng?
- Dýr sem sýna geislótta samhverfu eru dýr með tvö kímlög.
- Dýr sem sýna tvíhliða samhverfu eru dýr með þrjú kímlög.
- Innlag myndar þekju meltingarvegar og öndunarvegar.
- Miðlag myndar miðtaugakerfið.