Spurningar um gagnrýna hugsun
Spurning 14. Ef einstaklingur dreifir handfylli af fræjum garðertuplantna á eitt svæði, hvernig myndi náttúruval verka við þær aðstæður?
Spurning 15. Af hverju telja vísindamenn leifarlíffæri vera vísbendingar um þróun?
Spurning 16. Hvernig er vísindaleg merking orðsins „kenning“ frábrugðin almennri daglegri merkingu þess?
Spurning 17. Útskýrðu hvers vegna sú fullyrðing að api sé þróaðri en mús er röng.
Spurning 18. Af hverju skapa eyjaklasar kjöraðstæður fyrir aðlögunarkvíslun?
Spurning 19. Tvær fisktegundir höfðu nýlega orðið til með samsvæða tegundamyndun. Karlfiskar hvorrar tegundar höfðu ólík litareinkenni sem gerðu kvenfiskum kleift að þekkja og velja maka af eigin tegund. Eftir nokkurn tíma varð vatnið í stöðuvatninu svo gruggugt vegna mengunar að erfitt var fyrir kvenfiska að greina liti. Hvað gæti gerst við þessar aðstæður?
Spurning 20. Af hverju getur fjöllitnun leitt til tegundamyndunar tiltölulega hratt?
Spurning 21. Hvað eiga bæði líkönin um hraða tegundamyndunar sameiginlegt?
Spurning 22. Lýstu aðstæðum þar sem æxlun blendinga gæti valdið því að tvær tegundir rynnu saman í eina.