Inngangur – Líffæra- og lífeðlisfræði, 2. útgáfa (IS) | Námsgögn
2020 Hjarta- og æðakerfið: Æðar og blóðrás
Inngangur
Mynd 20.1. Þótt flestar blóðæðar liggi djúpt undir yfirborði líkamans og sjáist ekki sýna yfirborðsbláæðar efri útlims glöggt hversu víðfeðmt og mikilvægt æðakerfið er. (mynd: Colin Davis)
Inngangur
Í þessum kafla kynnist þú æðahluta hjarta- og æðakerfisins: blóðæðunum sem flytja blóð um líkamann og háræðunum þar sem lofttegundir, næringarefni og önnur efni skiptast milli blóðs og frumna vefjanna. Skert starfsemi blóðæða getur dregið úr flutningi blóðborinna efna eftir umfangi og staðsetningu skerðingarinnar. Afleiðingarnar geta verið vefjaskaði, trufluð efnaskipti og skert starfsemi eins eða fleiri líffærakerfa.