Inngangur

Inngangur
Þótt þú kunnir að líta á námskeið í líffæra- og lífeðlisfræði eingöngu sem skylduáfanga í námi þínu mun þekkingin sem þú öðlast þar nýtast þér á mörgum sviðum lífsins. Skilningur á líffæra- og lífeðlisfræði er ekki aðeins undirstaða starfa í heilbrigðisgreinum heldur getur hann einnig stuðlað að bættri heilsu þinni. Þekking á mannslíkamanum getur hjálpað þér að taka heilsusamlegar ákvarðanir og bregðast rétt við þegar einkenni veikinda koma fram. Þekking á fræðasviðinu auðveldar þér að skilja fréttir um næringu, lyf, lækningatæki og meðferðir, auk erfða- og smitsjúkdóma. Allir glíma einhvern tíma við vanda sem tengist líkamanum og þekking þín getur nýst þér í hlutverki foreldris, maka, sambýlisaðila, vinar, samstarfsmanns eða umönnunaraðila.
Kaflinn hefst á yfirliti yfir líffæra- og lífeðlisfræði og stuttri kynningu á svæðum og starfsemi líkamans. Síðan er fjallað um einkenni lífs og hvernig líkaminn viðheldur stöðugum innri skilyrðum. Því næst eru kynnt stöðluð heiti á byggingum líkamans, líkamssniðum og líkamsstöðum; þau leggja grunn að ítarlegri umfjöllun síðar í bókinni. Að lokum eru sýnd dæmi um læknisfræðilega myndgreiningu sem gerir kleift að sjá inn í lifandi mannslíkama.