1.2 Skipulagsstig mannslíkamans
1.2 Skipulagsstig mannslíkamans
Námsmarkmið
Að þessum hluta loknum munt þú geta gert eftirfarandi:
- lýst gerð mannslíkamans út frá sex skipulagsstigum
- talið upp ellefu líffærakerfi mannslíkamans og tilgreint að minnsta kosti eitt líffæri og eitt meginhlutverk hvers kerfis
Áður en þú tekur til við að rannsaka mismunandi byggingu og starfsemi mannslíkamans er gagnlegt að skoða grunnskipulag hans, það er hvernig smæstu hlutar hans raðast saman í stærri heildir. Hentugt er að skoða byggingu líkamans eftir grundvallarskipulagsstigum sem verða sífellt flóknari: öreindir, frumeindir, sameindir, frumulíffæri, frumur, vefir, líffæri, líffærakerfi, lífverur og lífhvolf (mynd 1.3).

Skipulagsstigin
Til að rannsaka efnafræðilegt skipulagsstig beina vísindamenn sjónum að einföldustu byggingareiningum efnis: öreindum, frumeindum og sameindum. Allt efni í alheiminum er gert úr einu eða fleiri tilteknum hreinum efnum sem kallast frumefni. Kunn dæmi eru vetni, súrefni, kolefni, köfnunarefni, kalsíum og járn. Minnsta eining hvers þessara hreinu efna, frumefnanna, er frumeind. Frumeindir eru gerðar úr öreindum á borð við róteindir, rafeindir og nifteindir. Tvær eða fleiri frumeindir tengjast og mynda sameind, svo sem vatnssameindir, prótein og sykrur sem finnast í lífverum. Sameindir eru efnafræðilegar byggingareiningar allra bygginga líkamans.
Einstök fruma er minnsta eining lifandi lífveru sem starfar sjálfstætt. Jafnvel bakteríur, sem eru örsmáar lífverur og lifa sjálfstætt, hafa frumugerð. Hver baktería er ein fruma. Allar lifandi byggingar mannslíkamans eru gerðar úr frumum og nær öll lífeðlisfræðileg starfsemi hans fer fram í frumum eða hefst þar.
Mannsfruma samanstendur að jafnaði af sveigjanlegum himnum sem umlykja umfrymi, það er vatnskenndan frumuvökva ásamt ýmsum smáum starfseiningum sem kallast frumulíffæri. Hjá mönnum, eins og öllum lífverum, sinna frumur allri lífsstarfsemi. Vefur er hópur margra svipaðra frumna, en stundum nokkurra skyldra frumugerða, sem vinna saman að tilteknu hlutverki. Líffæri er líffærafræðilega afmörkuð bygging í líkamanum sem er mynduð úr tveimur eða fleiri vefjagerðum. Hvert líffæri sinnir einu eða fleiri tilteknum lífeðlisfræðilegum hlutverkum. Líffærakerfi er hópur líffæra sem vinna saman að meginhlutverkum eða mæta lífeðlisfræðilegum þörfum líkamans.
Bókin fjallar um ellefu aðgreind líffærakerfi mannslíkamans (mynd 1.4 og mynd 1.5). Það er ekki alltaf ótvírætt hvaða líffærakerfi líffæri tilheyra, því líffæri sem „tilheyra“ einu kerfi geta einnig gegnt ómissandi hlutverki í öðru. Raunar leggja flest líffæri sitt af mörkum til fleiri en eins kerfis.
Í þessari bók og í námi þínu í lífvísindum munt þú oft lesa lýsingar á því hvernig líffræðilegar byggingar, ferli og heilsa eru lík eða ólík eftir líffræðilegu kyni einstaklings. Orðin „kvenkyns“ og „karlkyns“ eru oft notuð um tvö ólík hugtök: kynvitund okkar annars vegar og líffræðilegt kyn hins vegar, sem ræðst af litningum, hormónum, líffærum og öðrum líkamlegum einkennum. Hjá sumum er kynvitund önnur en líffræðilegt kyn eða það kyn sem þeim var úthlutað við fæðingu. Í þessari bók vísa „kvenkyns“ og „karlkyns“ eingöngu til líffræðilegs kyns og fjallað er um dæmigerða líffæra- og lífeðlisfræði einstaklinga með XX- og XY-litningasamsetningu.


Lífverustigið er efsta skipulagsstigið. Lífvera er lifandi vera sem hefur frumugerð og getur sjálfstætt sinnt allri lífeðlisfræðilegri starfsemi sem er nauðsynleg fyrir líf. Í fjölfruma lífverum, þar á meðal mönnum, vinna allar frumur, vefir, líffæri og líffærakerfi líkamans saman að því að viðhalda lífi og heilbrigði lífverunnar.