9.1.6 Samantekt kennslustundar
9.1.6 Samantekt kennslustundar
9.1.6 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
- • þekkja stæður sem eru ferningar á ólíkum formum.
- • þekkja og leysa annars stigs jöfnur sem innihalda stæðu sem er ferningur.
Hér eru verkefnin sem hjálpuðu þér að ná þessum markmiðum:
- • 9.1.1 Jöfnur með annars stigs stæðum báðum megin jafnaðarmerkis. Í þessu verkefni ákvarðaðir þú hvað þurfti að setja í stað breytunnar til að fá sanna jöfnu.
- • 9.1.2 Að þekkja uppbyggingu stæðna sem eru ferningar. Í þessu verkefni margfaldaðir þú tvíliði til að búa til stæður sem eru ferningar.
- • 9.1.3 Að leysa fjölþrepa annars stigs jöfnur með ferningum. Í þessu verkefni leystir þú annars stigs jöfnur með tveimur mismunandi aðferðum. Í annarri aðferðinni tókstu ferningsrót beggja hliða jöfnunnar. Í hinni margfaldaðir þú saman tvo tvíliði og þáttaðir síðan.
- • 9.1.4 Að útskýra hvers vegna stæða er ferningur. Í þessu verkefni útskýrðir þú hvers vegna stæða er kölluð ferningur og leystir annars stigs jöfnu á þáttuðu formi.
Eftir þessi verkefni vannstu þessar æfingar:
- • 9.1.5 Æfingar
Staðan tekin
Hversu vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiðum þessarar kennslustundar? Svaraðu á kvarðanum 1 til 5.
Lausn
Flott ígrundun! Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að velta fyrir þér hvernig þú hugsar.