8.9.0 Yfirlit kennslustundar
8.9.0 • Yfirlit kennslustundar
Í þessari kennslustund beitir þú því sem þú hefur lært um að umrita stæður á þáttað form til að skilja annars stigs jöfnur og sýna þrautseigju við að leysa þær. Þú leysir jöfnur sem áður var aðeins hægt að leysa með grafi með því að fylgja þessum skrefum:
Skref 1 - Umraðaðu jöfnunni þannig að önnur hlið jafnaðarmerkisins sé 0.
Skref 2 - Umritaðu stæðuna á þáttað form.
Skref 3 - Notaðu núllþáttaregluna.
Skref 4 - Leystu hverja jöfnu.
Þegar þú lýkur þessari kennslustund munt þú geta:
Umraðað annars stigs jöfnu þannig að þáttaða stæðan sé jöfn 0 og fundið lausnirnar.
Borið kennsl á annars stigs jöfnur sem hafa enga, eina eða tvær lausnir þegar þær eru skrifaðar á þáttuðu formi.
Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðunum:
8.9.1 Að finna lausn með innsetningu
8.9.2 Notkun þáttaðs forms og núllþáttareglu til að leysa annars stigs jöfnur
8.9.3 Ritun jöfnu sem lýsir annars stigs falli með aðeins eina lausn
8.9.4 Lausn fleiri annars stigs jafna
Eftir það æfir þú þig og rifjar upp:
8.9.5 Æfing
8.9.6 Samantekt kennslustundar