44.15 Kynning á kvótarunum
4.15.6 Samantekt kennslustundar
4.15.6 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að finna liði sem vantar í kvótarunu.
Þessi verkefni hjálpuðu þér að ná markmiðinu:
- 4.15.1: Hver eru mynstrin? Í þessu verkefni tókstu eftir mynstrum og einkennum mismunandi runa og veltir þeim fyrir þér.
- 4.15.2: Notkun taflna og grafa til að setja fram kvótarunur. Í þessu verkefni notaðir þú töflur og gröf til að þekkja runu og finna næsta lið. Þú lærðir að kvótarunur geta stækkað eða minnkað. 4.15.2: Sjálfspróf. 4.15.2: Viðbótarefni.
- 4.15.3: Ljúktu við rununa. Í þessu verkefni laukstu við kvótarunur með því að fylla í eyðurnar. Þú notaðir kvótann til að finna mynstrið og ljúka við rununa. 4.15.3: Sjálfspróf. 4.15.3: Viðbótarefni.
- 4.15.4: Tengsl kvótans og liðar í runu. Í þessu verkefni tókstu saman það sem þú lærðir í kennslustundinni með því að útskýra hvers vegna runa er kvótaruna og hvernig hægt er að finna næsta lið.
Að lokum vannstu eftirfarandi æfingar:
- 4.15.5: Æfingar
Staðan tekin
Staðan tekin
Lausn
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel telur þú þig hafa náð námsmarkmiði þessarar kennslustundar?
Góð ígrundun! Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að hugsa um eigin hugsun.