3.2.1 Að velja bestu línuna
Upphitun
Hvor línan fellur betur að gögnunum í dreifiritinu? Sýndu rökstuðning þinn.
Lausn
Berðu saman svar þitt. Svör geta verið ólík. Hér er dæmi:
Heila línan fellur betur að gögnunum, því hún liggur um miðju gagnanna, fylgir neikvæðri leitni þeirra og mjög fáir punktar eru langt frá línunni sem fellur best að gögnunum.
Hvor línan fellur betur að gögnunum í dreifiritinu? Sýndu rökstuðning þinn.
Lausn
Berðu saman svar þitt. Svör geta verið ólík. Hér er dæmi:
Heila línan fellur betur að gögnunum, því hún liggur um miðju gagnanna og um það bil jafn margir gagnapunktar eru hvorum megin við línuna.
Hvor línan fellur betur að gögnunum í dreifiritinu? Sýndu rökstuðning þinn.
Lausn
Berðu saman svar þitt. Svör geta verið ólík. Hér er dæmi:
Strikalínan fellur betur að gögnunum, því hún liggur um miðju gagnanna og halli hennar fylgir leitni gagnanna. Heila línan hefur marga punkta fyrir ofan sig í byrjun og marga punkta fyrir neðan sig í lokin.
Hvor línan fellur betur að gögnunum í dreifiritinu? Sýndu rökstuðning þinn.
Lausn
Berðu saman svar þitt. Svör geta verið ólík. Hér er dæmi:
Strikalínan fellur betur að gögnunum, því hún liggur um miðju gagnanna, fylgir leitni þeirra og hefur svipaðan fjölda punkta hvorum megin sem eru ekki langt frá línunni. Heila línan fer nákvæmlega í gegnum fyrsta og síðasta punktinn, en flest gögnin eru fyrir ofan línuna.