Myndbandsverkefni
Myndbandsverkefni
Útreikningur vegins meðalfjármagnskostnaðar
Vegið meðaltal
1.
Hvernig er WACC reiknað og hvað tákna einstakir liðir formúlunnar?
2.
Í myndbandinu er skatthlutfall Steins og steypu hf. 30%. Reiknaðu WACC fyrirtækisins aftur ef breyting á skattalögum lækkar hlutfallið í 15%. Skýrðu hvers vegna skatthlutfallið hefur áhrif á WACC. Ættu stjórnendur Steins og steypu hf. að breyta fjármagnsskipan fyrirtækisins við þessa lækkun? Rökstyddu svarið.
Fjármagnsskipan fasteignafélaga
3.
Hvers vegna er ekki hægt að tilgreina eina bestu fjármagnsskipan fyrir öll atvinnufasteignafyrirtæki?
4.
Berðu saman afstöðu til áhættu hjá fjölskyldu sem hefur rekið atvinnufasteignafyrirtæki í margar kynslóðir og ungum frumkvöðli sem er að byggja upp slíkt fyrirtæki. Hvernig er fjármagnsskipan fyrirtækjanna tveggja líklega ólík og hvernig tengist sá munur áhættusniði þeirra?