2121 Skammtaeðli ljóss

Hæfnisverkefni

21.3 Tvíeðli ljóss

Vísindalegur skilningur okkar á ljósi hefur breyst með tímanum. Til eru gögn sem styðja bylgjulíkan ljóss, rétt eins og til eru gögn sem styðja agnalíkan ljóss.

Verkefni

  • Settu upp sýnitilraun sem styður bylgjulíkan ljóss. Ein möguleg aðferð er að nota álpappír, rakvélarblað og leysi til að sýna samliðun bylgna. Geturðu raðað efniviðnum þannig að sýnitilraunin verði áhrifarík? Útskýrðu skriflega hvernig gögnin úr sýnitilrauninni styðja bylgjulíkan ljóss.
  • Settu upp sýnitilraun sem styður agnalíkan ljóss. Ein möguleg aðferð er að nota neikvætt hlaðna rafsjá, sinkplötu og þrjá ljósgjafa með mismunandi tíðni. Oft eru notaðir rauður leysir, borðlampi og útfjólublár lampi. Geturðu raðað efniviðnum þannig að sýnitilraunin sýni ljósröfun? Útskýrðu skriflega hvernig gögnin úr sýnitilrauninni styðja agnalíkan ljóss.