2020 Population, Urbanization, and the Environment
Key Terms
Lykilhugtök
- sjálfbær þróun
- þróun sem hvorki gengur á náttúruauðlindir né skaðar náttúrulegt umhverfi
- hælisleitendur
- einstaklingar sem hafa sótt um alþjóðlega vernd en umsókn þeirra hefur ekki enn verið afgreidd
- óvenjuleg þyrping krabbameinstilfella
- landfræðilegt svæði þar sem óvenjumörg krabbameinstilfelli greinast meðal íbúa
- burðargeta
- sá fjöldi fólks sem getur búið á tilteknu svæði með hliðsjón af tiltækum auðlindum
- loftslagsbreytingar
- langvarandi breytingar á hitastigi og loftslagi af völdum mannlegra athafna
- sammiðja svæðalíkanið
- mannvistfræðilegt líkan sem lýsir borgum sem röð sammiðja hringja eða svæða
- gnægðarkenning
- kenning sem heldur því fram að hugvit fólks muni gera því kleift að útvega nægar auðlindir fyrir vaxandi mannfjölda
- kenning um lýðfræðileg umskipti
- kenning um fjögur stig mannfjöldaþróunar þar sem fæðingar- og dánartíðni breytast í samræmi við stig iðnþróunar
- lýðfræði
- fræðigrein sem rannsakar mannfjölda og breytingar á honum
- raf- og rafeindatækjaúrgangur
- biluð, úrelt og úr sér gengin raf- og rafeindatæki sem fargað er
- umhverfisrasismi
- það þegar samfélög sem standa höllum fæti félagslega og efnahagslega verða fyrir óhóflega miklum umhverfisógnum
- umhverfisfélagsfræði
- undirsvið félagsfræðinnar sem rannsakar gagnkvæm tengsl fólks, samfélaga og umhverfis
- jaðarúthverfi
- samfélög utan hefðbundinna úthverfa sem eru yfirleitt byggð fólki í hærri félags- og efnahagsstöðu
- frjósemistíðni
- mælikvarði sem byggist á raunverulegum fjölda fæddra barna
- bergbrot; vökvaknúin sprungumyndun
- aðferð til að vinna gas og olíu úr leirsteini með því að bora niður í jörðina og dæla háþrýstiblöndu vatns, sands og sérsamsettra efna í bergið
- miðstéttarvæðing
- það þegar fólk úr efri lögum samfélagsins og úr millistétt flytur inn í borgarhverfi eða samfélög sem hafa lengi verið efnaminni
- mannvistfræði
- sjónarhorn samvirknikenningar sem beinist að tengslum fólks við manngert og náttúrulegt umhverfi þess
- einstaklingur á flótta innan eigin lands
- einstaklingur sem hefur flúið heimili sitt en ekki farið út fyrir landamæri heimalandsins
- kenning Malthusar
- kenning um að jákvæðar hömlur (stríð, hungursneyð og sjúkdómar) og fyrirbyggjandi hömlur (aðgerðir sem draga úr frjósemi) takmarki mannfjölda
- samfellt stórborgabelti
- víðáttumikið, samfellt borgarbelti sem nær yfir margar borgir, úthverfi þeirra og jaðarúthverfi
- stórborgarsvæði
- svæði sem nær yfir borg, úthverfi hennar og jaðarúthverfi
- dánartíðni
- mælikvarði á fjölda dauðsfalla í tilteknum mannfjölda
- „Ekki í mínum bakgarði“ (NIMBY)
- tilhneiging fólks til að mótmæla umhverfisskaðlegri starfsemi þegar hún snertir eigið nærumhverfi
- mengun
- það þegar mengandi efni berast út í umhverfið í skaðlegu magni
- samsetning mannfjöldans
- lýðfræðileg samsetning mannfjölda á tilteknum tíma, meðal annars með tilliti til frjósemi, dánartíðni og fólksflutninga
- mannfjöldapýramídi
- myndræn framsetning á dreifingu mannfjölda eftir aldri og kyni
- flóttamaður
- einstaklingur sem hefur neyðst til að yfirgefa land sitt til að komast undan stríði, ofsóknum eða náttúruhamförum
- kynjahlutfall
- hlutfall karla miðað við konur í tilteknum mannfjölda
- úthverfi
- samfélög umhverfis borgir sem eru yfirleitt nógu nærri til að íbúar geti sótt þangað vinnu daglega
- borgarfélagsfræði
- undirsvið félagsfræðinnar sem rannsakar félagsleg, pólitísk og efnahagsleg tengsl í borgum
- borgvæðing
- samfélagslegt ferli þar sem fólk, stofnanir og efnahagsstarfsemi safnast í auknum mæli í borgir og félagsleg, pólitísk og efnahagsleg tengsl þar breytast
- flótti hvítra
- flutningur efnahagslega vel stæðs hvíts fólks úr borgarsvæðum með íbúum af ólíkum kynþáttum til úthverfa
- núllvöxtur mannfjölda
- fræðilegt markmið þar sem fjöldi þeirra sem bætast við mannfjölda vegna fæðinga eða aðflutnings jafngildir fjölda þeirra sem hverfa úr honum vegna dauðsfalla eða brottflutnings