Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Stjórnmál setja mark sitt á stóran hluta daglegs lífs okkar. Hvort sem við tökum virkan þátt í stjórnmálum eða ekki er erfitt að nota samfélagsmiðla, horfa á sjónvarp eða jafnvel eiga hversdagslegar samræður án þess að stjórnmál beri á góma. Margt sem er ómissandi í lífi okkar, svo sem menntun, atvinna og ferðalög, er háð stjórnmálakerfum. Við veltum hins vegar sjaldan fyrir okkur á hverju þessi kerfi hvíla. Þessi kafli rannsakar þann grundvöll með kynningu á stjórnmálaheimspeki. Stjórnmálaheimspeki er grein heimspeki sem fjallar um hvernig samfélög ákveða stjórnarhætti. Hún kannar einnig grunnhugtök á borð við réttlæti, þegnrétt og yfirvald, spurningar um lögmæti stjórnmálastofnana og þau réttindi, frelsi og skyldur sem borgarar kunna að hafa í samfélagi. Kaflinn hefst á umfjöllun um nokkra lykilhugsuði sögunnar frá ólíkum heimshlutum og hugmyndir þeirra um fyrirmyndarsamfélag. Því næst eru skoðuð ólík stjórnarform og kenningar um hvernig best sé að stjórna samfélagi og hvaða hlutverk leiðtogar og borgarar gegni. Að lokum er fjallað um nokkur þeirra álitaefna sem stjórnmálaheimspekingar samtímans ræða.