Spurningar um gagnrýna hugsun
Spurning 14. Vistfræðingar vinna oft með öðrum rannsakendum sem fást við vistfræðilegar spurningar. Lýsið þeim stigum vistfræðinnar þar sem samstarf væri auðveldara vegna þess að rannsóknarspurningarnar eru svipaðar. Á hvaða stigum vistfræðinnar gæti samstarf verið erfiðara?
Spurning 15. Stofn er mikilvæg eining í vistfræði og öðrum líffræðigreinum. Hvernig er stofn skilgreindur, og hverjir eru kostir og gallar þessarar skilgreiningar? Eru til tegundir sem á ákveðnum tímum eða stöðum eru ekki í stofnum?
Spurning 16. Berið saman uppstreymi í hafi og vor- og haustblöndun vatna og greinið muninn á þeim.
Spurning 17. Margar einlendar tegundir finnast á svæðum sem eru landfræðilega einangruð. Setjið fram sennilega vísindalega skýringu á því hvers vegna svo er.
Spurning 18. Mjög lítil úrkoma í eyðimörkum heittempraða beltisins gæti gefið til kynna að eldur væri mikilvægur röskunarþáttur; samt er eldur algengari í graslendi tempraða beltisins en í eyðimörkum heittempraða beltisins. Hvers vegna?
Spurning 19. Að hvaða leyti eru eyðimörk heittempraða beltisins og heimskautatúndra lík?
Spurning 20. Vísindamenn hafa fundið lík manna og annarra lífvera sem hafa legið grafin í mosamýrum í hundruð ára án þess að rotna. Setjið fram mögulega líffræðilega skýringu á því hvers vegna slík lík varðveitast svo vel.
Spurning 21. Lýsið aðstæðum og áskorunum sem lífverur í fjörubeltinu þurfa að takast á við.
Spurning 22. Berið saman hvernig náttúruleg ferli og ferli af mannavöldum hafa haft áhrif á hnattrænar loftslagsbreytingar og greinið muninn á þeim.
Spurning 23. Spáið fyrir um hugsanlegar afleiðingar þess að kolefnislosun frá jarðefnaeldsneyti haldi áfram að aukast.