3232 Æxlun plantna
Inngangur

Yfirlit kafla
- 32.1 Þroskun og bygging æxlunarfæra
- 32.2 Frævun og frjóvgun
- 32.3 Kynlaus æxlun
Inngangur
Plöntur hafa þróað með sér ólíkar æxlunaraðferðir sem tryggja viðgang tegunda þeirra. Sumar plöntur æxlast með kynæxlun en aðrar með kynlausri æxlun, ólíkt dýrum sem reiða sig nær eingöngu á kynæxlun. Kynæxlun plantna er yfirleitt háð frjóberum, en kynlaus æxlun er óháð slíkum lífverum. Blóm eru oft sá hluti plantna sem er mest áberandi eða ilmar sterkast. Með skærum litum, ilmi og fjölbreytilegri lögun og stærð laða blóm að sér skordýr, fugla og önnur dýr sem sinna frævun. Aðrar plöntur frævast með vindi eða vatni og enn aðrar sjálffrævast.