Líkan af flugi eldflaugar með annars stigs jöfnu
Líkan af flugi eldflaugar með annars stigs jöfnu
Alejandra kveikir á kveikiþræði lítillar leikfangaeldflaugar. Kveikiþráðurinn brennur út og eftir 1 sekúndu fer eldflaugin á loft. Eldflaugin lendir aftur á jörðu eftir 6 sekúndur.
Eldflaugin er í 8 metra hæð 5 sekúndum eftir að Alejandra kveikti á kveikiþræðinum.
- Hver er annars stigs jafnan á staðalformi sem lýsir flugi eldflaugarinnar? Vísbending: Hugsaðu um verkefnið sem annars stigs fall þar sem þú þekkir núllstöðvarnar og einn punkt á grafi fallsins.
- Notaðu jöfnuna sem þú fannst í fyrri spurningu til að finna hæð eldflaugarinnar, í metrum, 3 sekúndum eftir að Alejandra kveikti á kveikiþræðinum.