Umbreyting milli þáttaðs forms og staðalforms
Umbreyting milli þáttaðs forms og staðalforms
Þú hefur lært aðferðir til að rita annars stigs stæðu bæði á þáttuðu formi og staðalformi. Í hverri umferð þessa verkefnis færð þú eina annars stigs stæðu og samstarfsfélagi þinn jafngilda stæðu á öðru formi.
Markmið hverrar umferðar er að rita annars stigs stæðuna á sama formi og samstarfsfélagi þinn fékk. Ef stæðan þín er á þáttuðu formi skaltu rita hana á staðalformi. Ef stæðan þín er á staðalformi skaltu rita hana á þáttuðu formi. Í lok hverrar umferðar berið þið stæðurnar saman án þess að sýna stæðurnar úr síðari umferðum.
Ef þú þarft hjálp í einhverri umferð máttu biðja samstarfsfélaga þinn að útskýra næsta skref án þess að sýna lausnina.
Vinnið umferðir 1 til 6 og ræðið hugsun ykkar ef þið eruð ósammála.