7.17.1 Annars stigs stæður á mismunandi formum
7.17.1 • Annars stigs stæður á mismunandi formum
Upphitun
Hér eru gröf tveggja falla. Föllin f og g eru gefin með eftirfarandi jöfnum:
Hvaða graf táknar fallið ? Hvernig veistu það?
Berðu saman svarið þitt:
Neðra grafið sýnir fallið f og fer í gegnum upphafspunktinn.
gildi g er alltaf 4 meira en gildi f, sama hvaða gildi á x við veljum.
Ef jafnan er endurrituð á staðalform fæst:
Þetta form sýnir að skurðpunktur grafsins sem táknar f við y-ás er (0, 0).
Stæðan sem skilgreinir fallið f er á þáttuðu formi. Hún sýnir að skurðpunktarnir tveir við x-ás eru (0, 0) og (−6, 0).
Hvaða graf táknar fallið ? Hvernig veistu það?
Berðu saman svarið þitt:
Svar: Neðra grafið sýnir fallið f og fer í gegnum upphafspunktinn; efra grafið sýnir fallið g.
gildi g er alltaf 4 meira en gildi f, sama hvaða gildi á x við veljum.
Ef jafnan er endurrituð á staðalform fæst:
Þetta form sýnir að skurðpunktur grafsins sem táknar g við y-ás er (0, 4).
Hvar mætir graf fallsins f x-ásnum? Útskýrðu hvernig þú veist það.
Berðu saman svarið þitt:
x = −6 og x = 0, því þetta eru tvö gildi á x sem gera x(x + 6) jafnt og 0.