4.1.7 Samantekt kennslustundar
4.1.7 • Samantekt kennslustundar
Í þessari kennslustund lærðir þú að:
Útskýra hvenær tengsl tveggja stærða mynda fall.
Greina óháðar og háðar breytur í falli og nota orð og gröf til að setja fallið fram.
Útskýra hvað lýsingar og gröf falla segja okkur um aðstæður.
Hér eru verkefnin sem hjálpuðu þér að ná þessum markmiðum:
4.1.1: Að bera saman tvenn tengsl með rökum
Í þessu verkefni skoðaðirðu hvaða tengsl mynda fall og lærðir hvor stærðin er fall af hinni.
4.1.2: Að rökstyðja tengsl tveggja stærða með grafi
Í þessu verkefni teiknaðirðu gröf af hreyfingu hunds þar sem vegalengd var fall af tíma.
4.1.2: Sjálfspróf
4.1.2: Ítarefni
4.1.3: Að skoða vensl og föll
Í þessu verkefni ákvarðaðirðu hvort vensl væru föll með því að skoða gefin inntök og úttök.
4.1.3: Sjálfspróf
4.1.3: Ítarefni
4.1.4: Að lýsa tengslum í föllum
Í þessu verkefni greindirðu óháðar og háðar breytur í tengslum sem mynda fall. Þú ákvarðaðir líka hvaða breyta væri fall af hinni til að setja fram staðhæfingar um tengslin.
4.1.4: Sjálfspróf
4.1.4: Ítarefni
4.1.5: Að setja tengsl tveggja breyta fram með líkani
Í þessu verkefni dróstu saman það sem þú hafðir lært í kennslustundinni með því að greina óháðar og háðar breytur í aðstæðum, ákvarða hvaða breyta væri fall af hinni og teikna graf af aðstæðunum.
Eftir þessi verkefni leystir þú eftirfarandi æfingar:
4.1.6: Æfingar
Staðan tekin
Á kvarðanum 1 til 5, hversu vel telurðu þig ráða við námsmarkmið þessarar kennslustundar?
Lausn
Góð ígrundun. Þú lærir meira þegar þú gefur þér tíma til að hugsa um eigin hugsun.