Í vefnaðarvöruverslun eru efni seld í metrum. Saumakona eyddi 36,35 dollurum í 4,25 metra af silki og bómull í kjól. Metrinn af silki kostar 16,90 dollara og metrinn af bómull kostar 4 dollara.
Hér er jöfnuhneppi sem lýsir skorðunum í aðstæðunum.
Hvað táknar lausn jöfnuhneppisins?
Lausn
Svör geta verið mismunandi. Lausnin segir hve marga metra af silki og hve marga metra af bómull þarf til að uppfylla báðar skorðurnar: samtals eru þetta 4,25 metrar og þeir kosta alls 36,35 dollara.
Finndu lausn jöfnuhneppisins.
Lausn
Lausnin er 1,5 metrar af silki og 2,75 metrar af bómull.
Útskýrðu eða sýndu hvernig þú veist að lausnin leysir jöfnuhneppið.
Lausn
Svör geta verið mismunandi. Hér eru tvær mögulegar skýringar:
Gröf jafnanna skerast í punktinum (1,5; 2,75).
Ef jöfnuhneppið er leyst með töflu fæst x = 1,5 og y = 2,75.