Gagnrýnar hugsunarspurningar
Gagnrýnar hugsunarspurningar
Lýstu atburðaskema sem þú myndir taka eftir á íþróttaviðburði.
Útskýrðu hvers vegna atburðaskemu hafa svona sterk áhrif á mannlega hegðun.
Hvernig tákna orð ekki aðeins hugsanir okkar heldur líka gildi okkar?
Hvernig geta málfræðivillur í raun bent til máltöku hjá börnum?
Hvernig gæti sértækur námsörðugleiki, til dæmis rithömlun eða lesblinda, haft áhrif á menntun og skólagöngu barns?
Hvað er fastmótuð hugsun um notagildi og hvernig getur það hjálpað þér að leysa vandamál að sigrast á henni?
Hvernig sparar reiknirit þér tíma og orku þegar þú leysir vandamál?
Lýstu aðstæðum þar sem þú þyrftir að nota hagnýta greind.
Lýstu aðstæðum þar sem menningargreind myndi hjálpa þér að eiga betri samskipti.
Hvers vegna heldur þú að ólíkir kenningasmiðir hafi skilgreint greind á ólíkan hátt?
Berðu saman kosti Stanford-Binet-greindarprófsins og greindarprófa Wechslers og gerðu grein fyrir muninum.
Hvaða vísbendingar eru um erfðaþátt í greindarvísitölu einstaklings?
Lýstu tengslum námsörðugleika og þroskahömlunar við greind.