Hvers vegna skiptir það máli?

Yfirlit kafla
Hvers vegna skiptir það máli?
Fjármál eru nauðsynleg við stjórnun fyrirtækis eða stofnunar. Án vandaðra fjármálaferla, varúðarráðstafana og verkfæra er erfiðara að reka farsælt fyrirtæki. Árið 1978 var Bacon Signs fjölskyldufyrirtæki í miðvesturríkjum Bandaríkjanna sem framleiddi, seldi, setti upp og sinnti viðhaldi á skiltum fyrir fyrirtæki. Þá stóð til að þriðja kynslóð fjölskyldunnar tæki við rekstrinum af annarri kynslóðinni. Bacon Signs, sem var stofnað árið 1901, hafði staðið af sér kreppuna miklu, síðari heimsstyrjöldina, Víetnamstríðið og olíubannið og glímdi nú við sögulega mikla verðbólgu og háa vexti. Fjölskyldufyrirtækinu hafði tekist að komast í gegnum sveiflur í svæðisbundnu og landsbundnu efnahagslífi með því að bjóða viðskiptavinum sínum á svæðinu vandaðar vörur og góða þjónustu.
Í byrjun níunda áratugarins vænkaðist hagur fyrirtækisins til frambúðar. Eigandinn áttaði sig á því að sérsmíðuðu skiltin sem fyrirtækið framleiddi voru betri að gæðum en skiltin sem það setti upp fyrir stórar sérleyfakeðjur á landsvísu. Eigandinn vann með bankamanni fyrirtækisins og fjármála- og rekstrarstjóra þess að framleiðslu-, sölu- og fjármögnunaráætlun sem bjóða mætti stærri skiltafyrirtækjum á landsvísu. Stærri fyrirtækin samþykktu að fela Bacon Signs framleiðslu á meðalstórum pöntunum. Fyrirtækið skuldbatt sig síðan til að framleiða og afhenda þessi skilti á réttum tíma og innan kostnaðaráætlunar. Eftir því sem Bacon Signs varð þekktara fyrir gæði jókst eftirspurn eftir vörum fyrirtækisins. Upprunalega fjármögnunaráætlunin gerði ráð fyrir þessum mögulega vexti og átti að tryggja að fyrirtækið gæti mætt væntanlegri fjármagnsþörf og stækkað þegar og með þeim hætti sem þörf væri á.
Raunverulegt verðmæti Bacon Signs fólst í getu fyrirtækisins til að framleiða og afhenda vandaða vöru á góðu verði. En án áætlunarinnar og þeirrar getu til að afla fjármagns sem fjármögnunaráætlunin skapaði hefði fyrirtækið ekki getað nýtt styrkleika sína þegar mest á reyndi. Fjármögnun var lykillinn að stækkun og fjárhagslegum stöðugleika fyrirtækisins.1
Í þessari bók sýnum við fram á að fjármál fyrirtækja felast meðal annars í að þróa og skilja verkfæri sem hjálpa fólki að taka góðar ákvarðanir með stöðugum og endurtakanlegum hætti.