55 Bygging og hlutverk frumuhimna
Inngangur

Yfirlit kafla
- Hlutar og bygging
- Óvirkur flutningur
- Virkur flutningur
- Magnflutningur
Inngangur
Frumuhimnan hefur mörg hlutverk, en grundvallarhlutverk hennar er að afmarka frumuna og halda henni starfhæfri. Frumuhimnan er valgegndræp. Það þýðir að himnan hleypir sumum efnum frjálslega inn í frumuna eða út úr henni, en önnur efni komast ekki frjálslega yfir hana heldur þurfa sérhæfða byggingu og stundum jafnvel orku til að komast yfir.