33 Lífrænar stórsameindir
Inngangur

Yfirlit kafla
- Nýmyndun lífrænna stórsameinda
- Kolvetni
- Lípíð
- Prótein
- Kjarnsýrur
Inngangur
Fæða veitir líkamanum þau næringarefni sem hann þarf til að lifa af. Mörg þessara mikilvægu næringarefna eru lífrænar stórsameindir, það er stórar sameindir sem eru lífi nauðsynlegar. Mismunandi samsetningar smærri lífrænna sameinda, einliða, byggja upp þessar stórsameindir, eða fjölliður. Hvaða tilteknu lífrænu stórsameindir þurfa lifandi verur? Hvernig myndast þessar sameindir? Hvaða hlutverkum gegna þær? Við könnum þessar spurningar í þessum kafla.