Að nota flatarmálslíkan
Að nota flatarmálslíkan
Opnaðu gagnvirku hermunina til að hefja verkefnið.
Í þessu verkefni skaltu staldra við og deila svörunum þínum með félaga hvenær sem þú sérð 💬. Ef þið eruð ekki sammála skulið þið reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Notaðu fyrirmælin og leiðbeiningarnar hér fyrir neðan fyrir spurningar 1-4.
Gerum ráð fyrir að við viljum finna margfeldi 17 og 13 með flatarmálslíkani. Notaðu skjáina Explore og Generic í hermuninni. Þú getur skipt á milli skjáa með tækjastikunni fyrir neðan flatarmálslíkanið.
Teiknaðu skiptingarnar þínar á kvarðaða flatarmálslíkanið hér fyrir neðan og merktu þær.

Teiknaðu skiptingarnar þínar á almenna líkanið hér fyrir neðan og merktu þær.

Ræddu við hópinn: Hvernig er flatarmálslíkanið þitt í samanburði við líkön hinna í hópnum? Hvað er eins? Hvað er ólíkt? 💬
Rökstyddu hvernig þú veist að líkanið þitt táknar 17 × 13. Táknar flatarmálslíkanið þitt 17 × 13? Hvernig veistu það? 💬
Reyndu við borð 1-2 í Area Model Numbers Game!
Hverjar eru þrjár ólíkar leiðir til að skipta tölunni 17?
Búðu til þitt eigið margföldunardæmi með tveimur tveggja stafa tölum, notaðu flatarmálslíkan og finndu heildarflatarmálið.
Hvaða leið hentar þér vel til að skipta margföldunardæmi upp í flatarmálslíkan og hvers vegna hentar hún þér?