6Rannsóknarverkefni kafla 6: Margföldun með flatarmálslíkani
Að uppgötva flatarmálslíkan
Að uppgötva flatarmálslíkan
Opnaðu gagnvirku hermunina til að hefja verkefnið.
Í þessu verkefni skaltu staldra við og deila svörunum þínum með félaga hvenær sem þú sérð 💬. Ef þið eruð ekki sammála skulið þið reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Í dag kannar þú gagnvirka hermun. Hún er verkfæri sem hjálpar þér að sjá hvernig margföldun með flatarmálslíkani virkar.

Skref 1 - Opnaðu gagnvirku hermunina Area Model Algebra í vafranum. Þú notar hana til að vinna verkefnið. Hún á að líta út eins og myndin hér fyrir ofan.
Skref 2 - Prófaðu hvaða skjá sem er í Area Model Algebra í 5 mínútur.
Skref 3 - Svaraðu eftirfarandi spurningum.
- Hvernig tengist flatarmál rétthyrnings margföldun? 💬
- Skráðu tvö atriði sem þú tekur eftir eða spyrð þig um og eitt áhugavert atriði sem félagi þinn tók eftir.