Að beita flatarmálslíkani á margliður
Að beita flatarmálslíkani á margliður
Opnaðu gagnvirku hermunina til að hefja verkefnið.
Í þessu verkefni skaltu staldra við og deila svörunum þínum með félaga hvenær sem þú sérð 💬. Ef þið eruð ekki sammála skulið þið reyna að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Notaðu fyrirmælin og leiðbeiningarnar hér fyrir neðan fyrir spurningar 1-3.
Notaðu skjáinn Variables í hermuninni. Þú getur skipt á milli skjáa með tækjastikunni fyrir neðan flatarmálslíkanið.
Notaðu skjáinn Variables til að svara spurningunum hér fyrir neðan.
1. Prófaðu að slá inn eigin stæður með breytum og svaraðu síðan spurningunum.
a. Hvernig eru hlutmargfeldin (tölurnar inni í líkaninu) reiknuð í flatarmálslíkani?
b. Hvernig er heildarflatarmál flatarmálslíkansins reiknað?
c. Hvernig tengjast hlutmargfeldin heildarflatarmáli flatarmálslíkansins?
2. Notaðu hermunina til að setja fram . Hvert er heildarflatarmál þessa rétthyrnings? Settu heildarflatarmálið fram á fleiri en einn hátt. 💬

3. Notaðu hermunina til að setja fram. Hvert er heildarflatarmál þessa rétthyrnings? Settu heildarflatarmálið fram á fleiri en einn hátt. 💬

Reyndu við borð 1-4 í Area Model Algebra Game!
Hvernig líkist margföldun stæðna með breytum með flatarmálslíkani margföldun talna með flatarmálslíkani?
Viðbótarverkefni
Viðbótarverkefni: Reyndu að vinna aftur á bak og þátta algebrustæðu.

Hermunin Area Model er að plata þig. Hún sýnir hlutmargfeldin en ekki hliðarlengdirnar. Hvaða tölur og/eða breytur þurfa að vera utan við rétthyrninginn?