3.6.4 Að ákvarða tegund sambands
Lokaverkefni
Fyrir hvert breytupar skaltu ákvarða hvort um sé að ræða:
mjög veikt samband eða ekkert samband
sterkt samband sem er ekki orsakasamband
orsakasamband
Gættu þess að geta rökstutt svarið þitt.
Fjöldi snjóruðningstækja í eigu borgar og sala á vettlingum í borginni
Lausn
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband.
Útskýrðu rökstuðninginn fyrir svarinu við verkefni 1.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband. Breyturnar tengjast, því borgir með fleiri snjóruðningstæki eru líklega líka með meiri sölu á vettlingum en staðir með færri snjóruðningstæki. Loftslag, íbúafjöldi borgarinnar og snjómagn hafa áhrif á báðar breyturnar. Það að borg eigi fleiri snjóruðningstæki veldur ekki því að fólk kaupi fleiri vettlinga, og hið gagnstæða gerist ekki heldur.
Fjöldi smáskilaboða sem einstaklingur sendir á dag og fjöldi skyrtna sem einstaklingurinn á
Lausn
Mjög veikt samband eða ekkert samband.
Útskýrðu rökstuðninginn fyrir svarinu við verkefni 3.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Mjög veikt samband eða ekkert samband. Þessar breytur virðast ótengdar og engin önnur breyta, til dæmis aldur eða efnahagur, virðist tengjast báðum breytunum á stöðugan hátt.
Verð á pizzu og fjöldi hitaeininga í pizzunni
Lausn
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband.
Útskýrðu rökstuðninginn fyrir svarinu við verkefni 5.
Lausn
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Sterkt samband sem er ekki orsakasamband. Breyturnar tengjast, því dýrari pizza er yfirleitt stærri eða með meira áleggi og hefur því fleiri hitaeiningar. Það er þó stærð pizzunnar eða magn áleggsins sem veldur aukningu í báðum breytum.
7. Magn eldsneytis sem er notað í ferð og fjöldi mílna sem ekið er í ferðinni
Orsakasamband.
8. Útskýrðu rökstuðninginn fyrir svarinu við verkefni 7.
Berðu svar þitt saman:
Svar getur verið með ýmsum hætti, en hér er dæmi.
Orsakasamband. Lengri ferðir valda meiri eldsneytisnotkun og styttri ferðir krefjast minna eldsneytis.
Myndband: Að ákvarða tegund sambands
Horfðu á eftirfarandi myndband til að læra meira um notkun hugtaksins orsakasamband.